Hugarheimur Gunnars
Gleðilega hátíð öll sömul sem ennþá hafið nennu til að reka inn nefið inná þessa ómerkilegu síðu mína. Kærkomið að komast í páskafrí, voða kósý, lengsta frí ársins hjá hinum almenna launþega fyrir utan sumarfríið að sjálfsögðu. Ég keyrði út nokkur skeyti á skírdag bara svona rétt til þess að fá ekki alvarleg fráhvarfseinkenni frá vinnunni. Að öðru leiti hef ég bara notið þess að vera í frí og notið þess líka að finna mér eitthvað að bjástra. Ég vann það afrek til dæmis að klæða bílinn minn í sumarskóna, nú arka ég ekki meira á nöglum enda vorbragur í lofti. Spurning hvort maður dusti ekki rykið af golfsettinu og byrji á að æfa sveifluna fyrir sumarið. Ákaflega væri það nú skynsamlegt Gunnar minn. - Ég er þeirrar skoðunar að veðurfréttastelpan á Stöð 2 sé of sæt til að segja veðurfréttir. Í mínu tilfelli þá á ég það til að missa alla einbeitingu og er farinn að hugsa um eitthvað allt annað en hvernig veðrið á að vera næstu daga. Já, ég er frekar ósáttur með þetta vil hafa Sigga storm alltaf á skjánum þá held ég í það minnsta athyglinni allan tímann. - Ég vann einnig annað afrek um páskana að hlaupa 5 hringi á alvöru hlaupabraut eða 2 km á persónulegu meti 7:45mín, ég skora hér með á Samma vinnufélaga minn að reyna að höggva nærri þessum tíma. Erfið áskorun hér á ferð kallinn minn. - Ég leyfði mér þann munað að slaka á og horfa á hina yndislega hugljúfu kvikmynd A scent of a woman með Al Pacino í aðalhlutverki sem blindur fyrrverandi hermaður. Þetta er einn af þeim konfektmolum kvikmyndasögunnar sem ég kem aldrei til með að fá leið á, verður bara betri og betri líkt og gamalt vín. Ég kveð ykkur með þessum orðum mínir kæru lesendur til sjávar og sveita,