been fuelin' up on cocaine and whiskey

mánudagur, mars 05, 2007

X - Factor - Megi sá versti vinna

Ég hef sjaldan séð eins lélegt og hallærislegt sjónvarpsefni eins og söngþáttinn X-factor sem er nú á dagskrá á föstudagskvöldum á Stöð 2. Það er afskaplega pínlegt að fylgjast með, líkt og ekkert sé að ganga upp í þessum þætti, stjórnandi þáttarins Halla Vilhjálmsdóttir er ákaflega misheppnuð í hlutverki sínu sem kynnir, ólíkt Jóa og Simma sem eru algjörir fagmenn á þessu sviði. Erfitt að feta í þeirra fótspor. Ekki batnar það þegar kemur að dómaraskrípendunum, Páll Óskar jú vissulega skárstur, Einar Bárðarson sæmilegur og tók uppá því að fella tár í síðasta þætti. En hvaða snillingi datt í hug að ráða þessa Ellý í þennan þátt. Það er ekki heil brú í neinu af því sem þessi manneskja lætur út úr sér. Síðast en ekki síðst er komið að keppendunum og símakosningunni sem hefur verið í meira lagi undarleg, það er eins og verið sé að velja versta söngvarann. Sannaðist best skrípaleikurinn í síðasta þætti þegar blökkumaðurinn Alan fékk að taka pokann sinn. Algjörlega óskiljanlegt þar sem hann var sá eini sem sýndi boðlegan flutning, sönglega séð og hvað alla sviðsframkomu áhrærir. Það er vont en það versnar, held að það eigi mjög vel við að þessu sinni.

|
Ef þú vilt spjalla við mig
MSN: gunnigunn@hotmail.co.uk

Saumaklúbburinn

Netagerðarmenn:
Agnes
Ásta Rakel
Berglind
Bogi
Davíð
Dóra
Elísabet
Elsa
Freyja
Guðný Jóna
Ísak
Hermann
Helga Björk
Halldór
Hjálmar
Hjördís
Jón Örn
Ragga
Svanlaug
Sammi
Sigurður
Valdimar
Þórarinn
Myndasyrpa Gunna Gunn:
Gamalt&Gott
Á róló með Evu
Ísland-Ítalía
Djammið
Sálarböll
Daglegt Líf
Afmæli Ísaks
Chelsea-Arsenal
Framkvæmdir í Hvammi
Árshátíð Ímis 2001
Árshátíð Ímis 2003
Áramótagleði 2004
Afmæli Davíðs
Á landsliðsæfingu
Árshátíð Íslandspósts
Árshátíð Ísl.pósts (part 2)
Sálin á Nasa 7. maí 2005
Í svörtum fötum á Nasa 28. maí
Ferming Þórdísar 18. júní
Nokkrar myndir af Evu
Lanzarote í öllu sínu veldi
Lanzarote part II
Sálarball á Selfossi
Jólin 2005
Magni og Dilana á broadway
Árshátíð Íslandspósts 2006

Powered by Blogger