Sigurgleði - Áfram Ísland
Íslenska landsliðið í handknattleik stendur nú í ströngu þessa dagana á HM í Þýskalandi. Eftir ákaflega dapran leik gegn Úkraínu á sunnudag virtust öll sund lokuð, allt virtist vonlaust. Afar erfitt og allt að því óraunhæft verkefni beið íslenska liðsins en jafnframt þeirra eina von að leggja Frakka að velli. Og íslensku víkingarnir neituðu að gefast upp, létu ekki þetta mótlæti á sig fá og unnu ævintýralegan sigur á Evrópumeisturum Frakka 32-24 í Magdeburg í gær. Með þessum sigri tryggði liðið sér áfram í milliriðil. - Já, það er stutt á milli hláturs og gráturs í íþróttum, það var allt að því útfararstemmning í stofunni heima á sunnudagskvöldið en nú er gaman að vera til. Sigurvíman rennur ekki af manni í bráð og maður hefur endurheimt bjartsýnina að nýju.
