Benedikt Valberg sigrar í Jólalagasamkeppni Rásar 2
Úrslitin í Jólalagakeppni Rásar 2 voru tilkynnt í dag við hátíðlega athöfn í Síðdegisútvarpinu og viti menn Benni frændi bar sigur úr bítum. Alls bárust 60 lög í keppnina í ár og 10 þeirra voru valin af dómnefnd til að keppa til úrslita. Hlustendur gátu hlustað á lögin á Popplandsvefnum og greitt uppáhaldslaginu sínu atkvæði. Það voru yfir 30.000 atkvæði sem bárust frá íslensku þjóðinni og sigurvegarinn er hljómsveitin Fönn frá Selfossi en hana skipa lagahöfundurinn Benedikt Valberg Helgason og Guðleifur Guðmundsson en auk þess fengu þeir Benna, trommara Ísafoldar og Kristján gítarleikara lánaða við flutninginn á sigurlaginu sem ber nafnið Gjöfin. Idol stjarnan Snorri Snorrason sá um upptökustjórn og útsetningu. Verðlaunin voru að vanda vegleg en sigurvegarinn í Jólalagakeppni Rásar 2 þetta árið hlaut að launum 10 hljóðverstíma í Sundlauginni hjá Sigurrós í Mosfellsbænum. Flugferðir með Flugfélagi Íslands auk afnota af bílaleigubíl frá Hertz. Playstation 2 tölvu og 100 nýjar geislaplötur frá Senu, 12 tónum, Geimsteini og Smekkleysu. Að auki var sigurvegarinn leistur út með blómum frá Blómavali, góðgæti frá Nóa Síríusi og máltíð frá Nings. Hér má hlýða á spjall við sigurvegarana og auðvitað lagið
