Árshátíð Íslandspósts 2006
Árshátíð Íslandspósts var haldin með miklum glamúr og glæsileika á Broadway í gærkvöldi. Gunni Gunn lét sig ekki vanta að þessu sinni og mætti vel ölvaður til leiks, dustaði rykið af dansskónum og sletti ærlega úr klaufunum. Stelpurnar slógust um að dansa við kappann og allt ætlaði um koll að keyra. - Nei að öllu gríni slepptu þá heppnaðist þessi samkunda ákaflega vel í alla staði, mæting var góð, matur var til fyrirmyndar og hljómsveit reyndist betri en ég bjóst við og var dansað langt fram á nótt. Fyrir hönd fyrirtækisins er ég mjög sáttur við hvernig til tókst og ég hlakka til að mæta aftur að ári. Á myndinni hér til hliðar má sjá tvo myndarlega menn sem skemmtu sér konunglega en einnig er hægt að skoða fleiri myndir frá árshátíðinni á hægri kantinum. Njótið vel og gangi ykkur öllum alveg rosalega vel í framtíðinni.
