Mögnuð kvöldstund
Hinn þjóðþekkti skemmtistaður Broadway var vægast sagt þétt skipaður í gærkvöld þegar stjörnurnar úr rockstar supernova þáttunum Magni & Dilana héldu sameiginlega tónleika. Óhætt er að segja að mæting hafi verið með ólíkindum, kjaftfullt dansgólf, allt fullt á svölunum og ekki fræðilegur möguleiki að komast fremst við sviðið líkt og mér þykir afar nauðsynlegt þegar ég fer á mína sálardansleiki. Það ætlaði allt um koll að keyra þegar Magni steig á svið en hann var að halda sína fyrstu tónleika hér á landi eftir frægðarför sína yfir hafið. Þeir piltar í Á móti sól voru mættir til leiks á breiðvang og sérstakur gestur var Dilana og ekki fékk hún síðri móttökur. Öll helstu rokklögin úr rockstar þáttunum voru tekin í bland við vinsælustu númer þeirra drengja í áms. Afskaplega hafði ég gaman af breytingunni á Proclaimers laginu 500 miles, undir lokin ætlaði svo þakið að rifna af húsinu þegar uppklöppunarlögin Basketcase með Green Day og Fire Water Burn með Bloodhound Gang fengu að hljóma við góðar undirtektir. Að lokum vil ég þakka, Karólínu, Dóru og Önnu kærlega fyrir að hafa dregið mig með á þennan einstaka viðburð, ég hefði svo sannarlega ekki viljað missa af þessu. Takk fyrir skemmtilegt kvöld.
