Hið heilaga guðspjall - Sálin & gospel
Það var hátíðleg stund hjá Sálverjum þegar þeir stigu á stokk og höfðu ekki ómerkari bakraddir en gospelkór Reykjavíkur sér til fulltingis í kvöld. Undirritaður ásamt sinni barnshafandi frænku sat á fremsta bekk eða því sem næst í sneisafullri Laugardalshöll. Það var vel mætt til messu, löngu uppselt enda ekki á hverjum degi sem gospelkór og ein albesta dægurlaga hljómsveit landsins skríða saman í eina sæng. Ekki er langt síðan Sálin og Sinfóníuhljómsveit Íslands tóku höndum saman og héldu mjög eftirminnilega tónleika í Háskólabíó. Því má með sanni segja að þeir félagar í Sálinni séu óhræddir að víkka út sjóndeildarhringinn. – Frá mínum bæjardyrum séð voru tónleikarnir í kvöld afskaplega velheppnaðir og þær gullfallegu lagasmíðar drengjanna féllu ákaflega vel við gospelið. Tvö frumsamin lög, sérstaklega samin við þetta tilefni litu dagsins ljós og gæti ég vel trúað að annað þeirra komi til með að hljóta talsverða spilun á öldum ljósvakans innan skamms. Af öðrum lögum og útsetningum sem heilluðu tóneyrað má nefna hið klassíska lag Hjá þér, hið ofurvæmna Þú fullkomnar mig. Fyrsta lag kvöldsins, Ekkert breytir því var stórbrotið og kraftmikið. Undir þínum áhrifum, einn af nýjustu konfektmolum sálarinnar bragðaðist óaðfinnanlega líkt og Svarið er já af sömu plötu. En það lag sem heillaði mig mest og fékk fólk til að rísa úr sætum var lagið Aldrei liðið betur. Það var einmitt lokalag kvöldsins og veltilfundið að enda á þessum jákvæðu nótum. Ógleymanleg kvöldstund.
