Magnaður Magni
Eins og sönnum Íslendingi sæmir horfði ég á Rockstar Supernova aðfaranótt fimmtudags á skjá einum og fylgdist með Guðmundi Magna Ásgeirssyni, betur þekktur sem bara Magni söngvari hinnar hressu hljómsveitar Á móti Sól. Þó svo að framistaðan hjá pilti hafi ekki verið uppá mjög marga fiska þá tel ég þetta vera frábæran árangur hjá stráknum að hafa komist í þennan þátt. Ég veit ekki með ykkur en mér fannst voða skrýtið að sjá hann þarna. Ekki laust við að hugsanir á borð við "Hvað er Magni að gera þarna?" eða Hver bauð eiginlega Magna í þetta partý? hafi skotið uppí kollinn um leið og ég fylgdist með. En hvort hann eigi nú heima í þessum rokkbransa verða næstu vikur að skera úr um, eina sem ég veit er að ég ætla bara að hækka örlítið í sjónvarpinu og njóta þess að hlusta á gott rokk. Takk fyrir mig í bili.
