Smásaga úr daglega lífinu
Um daginn fór ég í verslunarleiðangur. Ung stúlka var með í för enda finnst mér fátt nauðsynlegra en að fá kvenlegt mat á þann fatnað sem ég er hugsanlega að festa kaup á. Ég þrammaði inní búð eina á laugaveginum og ákvað að máta nokkra boli. Klukkan var rétt að nálgast tvö, það var rjómablíða og óvenju hlýtt miðað við að maí mánuður var nýgenginn í garð. Þar sem litir bolanna voru fleiri en flokkslitir stjórnmálaflokkanna sem bjóða sig fram til sveitastjórnarkosninganna nú í vor, vöfðust þessi innkaup ögn fyrir mér. Ég ákvað því að máta alla þá liti sem fyrirfinnast í regnboganum. Afgreiðslumaðurinn sagði mér að ég þyrfti ekkert að óttast búðin væri opin til sex. Þegar ég hafði smeykt mér í einn bolanna spyr búðareigandinn stúlkuna hvort hún telji mig ekki boðlegan útlitslega í þessum fallega bleikröndótta bol. Stúlkan hikaði en svaraði spurningunni þó játandi, sölumaðurinn var síður en svo hættur allri lofgjörð og sagði síðan; Hann var náttúrulega flottur fyrir. Ég hugsaði með mér að ég þyrfti líklega ekki að sækja sjálfstyrkingarnámskeiðið mitt í bráð.
