Esjan lögð að velli
Flott veður, skemmtilegur göngufélagi og frábært útsýni. Hvað er hægt að biðja um það betra? Það má með sanni segja að við höfum fengið skemmtilegan kokteil af íslenskri veðráttu þegar ég ásamt Röggu frænku ákváðum að sýna mátt okkar og megin og klifum esjuna í dag. Á leiðinni upp var hið prýðilegasta veður, hitastigið vel ásætanlegt miðað við í öndverðum apríl mánuði, hægur andvari af suðri og gott ef nokkrir sólargeislar náðu ekki að brjóta sér leið út úr annars skýjuðum himninum. Á leiðinni niður var öldin hins vegar önnur, þá byrjaði að snjóa og þegar enn neðar var komið tók dásamleg rigning okkur opnum örmum líkt og við værum sigurvegarar. Ómetanlegt! Ragnhildur sérlegur myndasmiður í þessari ferð náði þessari einstöku mynd þegar við vorum í þann mund að nálgast toppinn.
