Úrslitastund
Þá er stóra stundin að renna upp. Úrslitaþáttur Idol stjörnuleitar 2006 næstkomandi föstudagskvöld. Aðeins tveir keppendur eftir. Snorri og Ína. Hver stendur uppi sem sigurvegari? – Ég viðurkenni það góðfúslega að ég er mikill Idol aðdáandi og hef horft á allflesta þættina. Auðvitað hafa þeir verið misgóðir, keppendur átt sína góðu og slæmu spretti til skiptis. Mér hefur fundist þemað í þáttunum vera of gamaldags á köflum, persónulega höfðar gömul tónlist alveg til mín en ekki fjóra jafnvel fimm þætti í röð. Það er kannski fullmikið af því góða, sérstaklega þegar við erum stödd á árinu 2006 og ekki að leita að næsta Geir Ólafs. - En snúum okkur að þeim tveim keppendum sem eftir eru. Byrjum á Ínu, Húsavíkurmærinni sem er rétt svo komin með bílpróf og ég spáði að mynda detta út í fyrsta þætti í Smáralind. Sú hefur aldeilis komið á óvart. Hún hefur tekið lög í öllum deildum tónlistar, fetað í fótspor ekki ómerkari söngkvenna á borð við Whitney Houston, Ellý Vilhjálms, Kelly Clarkson og meir að segja spreytt sig á Coldplay lagi, slapp fyrir horn með þann flutning. Ína er afskaplega andlitsfríð stelpa, þroskuð rödd og sál, eini löstur á annars fantaflottri og ef til vill verðandi idolstjörnu er vaxtarlagið. Má alveg við því að missa þau nokkur kílóin. – Vindum okkur að lakkríslengjunni. Snorri hefur alltaf verið í uppáhaldi hjá mér, og mig grunaði alltaf að strákurinn myndi ná langt í keppninni. Kannski ekki alla leið í úrslitaþáttinn en hann hefur mjakað sér þetta hægt og rólega. Hann hefur rokkað og tekið balllöður til skiptis og þjóðin hefur greinilega alveg legið kylliflöt enda afar góður söngvari hér á ferð og með sérstaka rödd. Gaurinn er ótrúlega jarðbundinn og hógvær, sviðsframkoma og danshæfileikar ekki uppá marga fiska en bætir það upp með töff útliti og að sjálfsögðu boðlegri rödd. – Ég er ekki spámannlega vaxinn og hef oftast rangt fyrir mér þegar kemur að því að giska á úrslit, samt sem áður læðist sá grunur að mér að Snorri gæti tekið þetta á reynslunni, árafjöldanum sem hann hefur fram yfir Ínu. Hann vinnur hana aldrei í broskeppninni en ég hallast að 60/40 fyrir Snorra. Að lokum vil ég þakka pappakassa.net fyrir því án hans væri lífið ekki dans á rósum.
