Í sigurvímu á Stamford Bridge
Jú komiði sæl. Þar sem ég sjálfur er ekki að gera neitt af viti þessa dagana þá verð ég víst að leita á önnur mið til að afla frétta. Skötuhjúin, Ragga og Júlli brugðu sér í helgarferð til London um síðustu helgi og hápunktur ferðarinnar var viðureign Chelsea og Liverpool í kartöflugarðinum eins og gárungarnir kalla völlinn nú á dögum. Þegar fréttastofa Gunnars sló á þráðinn til Röggu nú síðdegis sagði hún að þetta væri eitt það skemmtilegasta sem hún hefði upplifað og mælti hiklaust með svona fótboltaferð. Ekki voru úrslitin amaleg því hinir fagurbláu yfirspiluðu strákana frá bítlaborginni og unnu sannfærandi sigur með tveimur mörkum gegn engu. Ætla má að sigur Chelsea hafi tryggt þeim aðra hönd á enska meistaratitilinn annað árið í röð enda forystan í deildinni orðin dágóð. Nú er bara spurning hvort þeir nái ekki þrennunni eftirsóttu líkt og mancester united hér um árið.
