Sjónvarpsstjarna á Sálarballi
Það var djammhelgi hjá kappanum að þessu sinni enda langt síðan maður sletti síðast ærlega úr klaufunum. Sálverjar á Nasa í gærkveldi og það þýðir bara eitt dömur mínar og herrar, jú Gunni Gunn mætti á svæðið draugfullur eins og vanalega. Margt var um manninn og stemmningin hreint með ólíkindum góð í alla staði. Á dansgólfinu rakst maður á Ellý, sjónvarpsdrottninguna sem tekur þátt í Ástarfleyinu á Sirkus um þessar mundir. Alltaf á dagskrá klukkan 21 á fimmtudagskvöldum. Fyrir þá sem ekki vita þá er Ellý gríðarlega mikill sálaraðdáandi og gaman frá því að segja að okkar fyrstu kynni voru einmitt á Sálarballi á Broadway fyrir nokkrum árum. Með Ellý á myndinni er Anna systir hennar en þær stöllur skemmtu sér konunglega. Þessi frétt var í boði Séð&Heyrt.
