Gleðilegt hátíð
Komiði sæl og blessuð. Jólin eru alltaf dásamlegur tími og það er engin undantekning þetta árið. Það tók um tvo klukkutíma að opna allar jólagjafirnar hjá okkur í Hvammi enda mættu systur mínar tvær til leiks með sínar fjölskyldur. Ýmislegt leyndist í pökkunum þetta árið, ég fékk meðal annars prentara, einnig er ég orðinn alveg fastur áskrifandi af bókum Arnaldar, sálardiskurinn kom að sjálfsögðu í hús ásamt trefli, peysu, sokkum og sitthvað fleiru fallegu. Eftir að pakkaflóðinu lauk var ákveðið að spila póker langt fram á jólanóttina. - Það er föst hefð að fara í jólaboð til systur minnar á Hellu annan í jólum og alveg stranglega bannað að rjúfa þessa hefð. Þar var áframhaldandi spilamennska í fyrirrúmi ásamt dýrindis kræsingum en einnig ákvað Benni að slá á nokkra strengi á gítar sinn og hita upp fyrir sálardansleik í Hvíta Húsinu á Selfossi. Fyrsta skipti sem ég upplifi svona ball út á landi. Mér leið svoldið eins og ég væri á ættarmóti og ég hefði ekki fengið boðsmiða. Samt sem áður þá var ágætis stemmari en næst vil ég fá betri móttökur frá sunnlenskum fljóðum. Ég þakka fyrir mig. (jólamyndasyrpa væntanleg)
