Typpatal með Audda og sitthvað fleira
Langt síðan maður hefur hripað niður nokkrar línur. Það hefur nú ýmislegt drifið á daga mína síðan ég lét í mér heyra síðast. Móðir mín átti stórafmæli 26. október og voru mikil veisluhöld í Hvammi og öll fjölskyldan, systkini mín sex að tölu ásamt mökum og barnabörnum mættu í mat. - Ég seldi bílinn minn í október og hef verið bíllaus núna í rúman mánuð. Alveg dásamlegt að vera laus við það að eiga bíl. Nei nei, að öllu gríni slepptu þá styttist með hverjum deginum að ég kaupi mér bíl að nýju. - Fór á útgáfutónleika Bubba í síðustu viku í Þjóðleikhúsinu sem voru angurværir í bland við alvöru rokk þar sem fólk þurfti allt að því að halda fyrir eyrun. - Ég fékk óvænt boð síðast liðin fimmtudag um að fara á forsýningu leiksýningarinnar Typpatals með Auðunni Blöndal sem verður tekin til sýninga á Nasa í lok nóvember. Það má óhikað líkja þessu dáldið við Hellisbúann sem naut fádæma vinsælda í Íslensku Óperunni hér um árið. Auddi er einn á sviðinu allan tímann og það má kannski segja að þetta sé öllu meira "stand up" heldur en leiksýning. En ég get ekki annað en mælt með þessu, ég skemmti mér alveg furðuvel og hef sjaldan hlegið eins mikið. Þetta er einhvað sem á eftir að verða mjög vinsælt og einnig alveg nauðsynlegt að lyfta sér upp í svartasta skammdeginu.
