Idol Stjörnuleit 3
Bylgjan bauð mér að kíkja aðeins inní framtíðina og fylgjast með upptöku á undanúrslitum Idol-stjörnuleitar á Nasa. Þetta eru þættir sem verða sýndir í nóvember og desember. Á þessu stigi keppninnar eru 35 keppendur eftir og er þeim skipt í fimm hópa sem innihalda sjö einstaklinga í hverjum og einum. Tveir komast svo áfram úr hverjum hóp eftir símakosningu og fara í úrslit í Smáralind. Ég fékk boðsmiða bæði á þriðjudags-og fimmtudagskvöldið í þessari viku og skemmti mér ágætlega. Í bæði skiptin voru hóparnir skipaðir 2 strákum og 5 stelpum þannig að við, strákarnir eigum dáldið undir högg að sækja í þessari keppni. Engu að síður tel ég ágætis líkur á að strákur komist áfram úr þriðjudagshópnum. Ég verð að hrósa Stöð 2 fyrir að velja Nasa sem leikvöll fyrir þessi 35 manna úrslit, þetta er alveg frábær staður fyrir svona viðburð. Einnig eru Simmi og Jói að gera gott mót, þeir hafa einstaklega gott vald á því sem þeir eru að gera og eru ansi hnyttnir oft á tíðum í tilsvörum. Þannig er mín sýn á Idolið. Þið getið farið að hlakka til því það er flottur vetur framundan.
