Hildur Vala - Algjört eyrnakonfekt
Útgáfutónleikar Hildar Völu voru haldnir með glamúr og glæsileika í Salnum, tónlistarhúsi okkar Kópavogsbúa í dag. Eftir að fresta þurfti tónleikunum vegna veikinda Idolstjörnunar var stúlkan mætt frísk og hraust til leiks og söng lög af nýútkominni plötu. Tónleikarnir heppnuðust einstaklega vel. Ungur og óþekktur gítarleikari að nafni Helgi Valur steig á stokk á undan Hildi og söng þrjú lög. Þvílíkur flutningur, ótrúlega hæfileikaríkur piltur þarna á ferðinni sem vert er að gefa gaum í framtíðinni. Má meðal annars nefna að hann tók lag á tónleikunum sem heitir Death og er myndbandið mikið í spilun á skjá einum og popp tíví. En því næst var komið að aðalnúmerinu, stelpunni með spékoppinn. Í sannleika sagt þá var ekki slegin feilnóta undir styrkri stjórn Jóns Ólafssonar, lög á borð við Í fylgsnum hjartans, songbird, the boy who giggled so sweet, Luka, Röddin þín og Líf fannst undirrituðum heppnast hvað best. Þetta voru í heild frábærir tónleikar og við, Kópavogsbúar getum verið stoltir að eiga svona glæsilegt tónlistarhús. Framundan hjá Gunna Gunn: Handboltalandsleikur í Kaplakrika á mánudagskvöld og Tónleikar með Bubba í Þjóðleikhúsinu á þriðjudagskvöldið.
