Gamalt heilræði grafið upp
Fyrir þremur árum skrifaði ég pistil um alla þá kosti sem það hefur í för með sér að vera ólofaður og taldi það heillavænlegast. Minn ágæti félagi Jón Örn lagði þó fyrir mig lífsreglurnar og svaraði mér um hæl. ”Ég held þó að það sé röng afstaða hjá þér Gunnar að útiloka konur því það er ekki að ástæðulausu sem talað er um "betri helminginn". Kvenmaður í lífi manns kemur reglu á óregluna. Með rétta kvenmanninn þér við hlið lokar þú á þessa hormónahugsun sem þú gengur með daglega og ferð að njóta lífsins, það held ég að sé einn aðal kostur sambanda, staðfesta í lífinu sem veitir öryggi sem fær mann til að njóta betur þess sem lífið hefur upp á að bjóða. Það er jú í eðli mannsins að para sig og því ríkir ákveðin óró þar til þeirri þörf er fullnægt.” (Jón Örn Ólafsson) Svo sannarlega orð að sönnu og mun ég ævinlega vera þakklátur Jóni fyrir að koma vitinu fyrir mig.
