Fermingardagur Þórdísar Erlu
Klukkan er 11 að morgni. Laugardagurinn 18. júní rennur upp heiðskýr og fagur. Það má með sanni segja að veðurguðirnir séu í sínu albesta skapi í dag. Sólin skín sem aldrei fyrr og angurvær eyjafjallagolan leikur við grænar grundir. Fjölskyldan er samankomin í Skógakirkju undir Eyjafjöllum til að vera viðstödd þegar Þórdís Erla, bróðurdóttir mín gengur fyrir gafl. Það er sagt að maður komist í fullorðins mannatölu þegar maður fermist. Við erum ekki aðeins að staðfesta skírnina heldur í raun að kveðja æskuna. Við erum að verða fullorðið fólk. - Skógakirkja er ekki stór kirkja, byggð árið 1998 og örugglega minnsta kirkja landsins enda þurfti ekki stóra kirkju því Þórdís Erla var eina fermingarbarnið í dag. Það hlýtur óneitanlega að vera ansi gaman að vera alein í öllu sviðsljósinu, með heila kirkju út af fyrir sig þótt lítil sé. Athöfnin heppnaðist afskaplega vel. Kirkjugestir héldu því næst yfir í Fossbúð, samkomuhús að Skógum þar sem veislan fór fram. (Myndir á hægri kantinum.)
