Bubbi verður alltaf kóngurinn
Eins og alþjóð veit á Bubbi Morthens 25 ára starfsafmæli um þessar mundir og af því tilefni hélt hann ferna tónleika í Þjóðleikhúsinu. Ekki nóg með það heldur gaf hann út tvær plötur í vikunni sem hann vann með Barða Jóhannssyni sem oftast er kenndur við Bang Gang. Þessar nýju plötur hjá Bubba heita Ást og Í sex skrefa fjarlægð frá paradís. Ég var svo lánsamur að ná mér í miða á þessa fínu tónleika hjá þessum afkastamesta tónlistarmanni þjóðarinnar. Bubbi byrjaði einn á sviðinu og tók gömul lög í bland við lög sem eru að finna á nýju plötunum. Ótrúlegt hvað textarnir eru persónulegir hjá honum og fjalla beinlínis um það sem er að gerast í lífi hans. Bubbi var ekki mikið í því að spjalla á milli laga eins og hann á vanda til enda gafst ekki mikill tími því lögin voru mörg. Ég var mjög sáttur með lagavalið og sérstaklega fannst mér gaman að heyra lagið "Fallegur dagur" hljóma þarna með hljómsveit og Ellen Kristjánsdóttir aðstoðaði Bubba í söngnum. Toppurinn var svo þegar Svartur afgan og Fjöllin hafa vakað komu í lokin. Mikið svakalega voru þetta skemmtilegir tónleikar.
