Mark eða ekki mark?
Seinni leikur Liverpool og Chelsea í Meistaradeild Evrópu fór fram á Anfield Road heimavelli þeirra rauðklæddu í gærkvöldi. Umdeildt atvik átti sér stað í upphafi leiks þegar ágætur dómari frá Sviss dæmdi mark tilhanda Liverpool mönnum. Á þessari mynd hér til hliðar má þó sjá að svo virðist sem knötturinn sé kominn inn fyrir línuna. Það er þó erfitt að staðfesta. Ég er hins vegar sammála þeirri skoðun Jose Mourinho þjálfara Chelsea að betra liðið hafi tapað í gær. Auðvitað vörðust Liverpool drengir ákaflega vel og maður leiksins án nokkurs vafa Jamie Carragher miðvörður Liverpool. Þetta öskubusku ævintýri rauða hersins úr bítlaborginni minnir mig ögn á hið ótrúlega afrek Grikkja á Evrópumótinu í fyrra í Portúgal. Það er hægt að komast ansi langt á velskipulögðum varnarleik því það nægir jú að skora bara eitt mark ef maður heldur hreinu. Ég veit samt ekki hvort ég er einn þeirrar skoðunar en mér finnst eilítið hallærislegt ef Liverpool tekst að vinna Meistaradeild Evrópu 2005. Sú staðreynd að lið sem er í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar á eftir erkifjendunum í Everton auk þess að tapa reglulega fyrir liðum í neðri helmingi deildarinnar á ekki skilið nafnbótina besta lið Evrópu. Ég segi því Forza Milan!
