been fuelin' up on cocaine and whiskey

fimmtudagur, apríl 14, 2005


Bakþankar Jóns Gnarr

Jón Gnarr skrifaði þennan pistil í fréttablaðið fyrir ekki svo löngu síðan. Ég var svo innilega sammála þessari grein að ég ákvað að birta hana í heild sinni hér þar sem ég hef voða lítið að segja sjálfur þessa dagana.

"Ég sá viðtal við Landlækni í fréttunum á dögunum. Samkvæmt upplýsingum Landlæknis smitast um 2000 manns af klamydíu á hverju ári á Íslandi. Það er frekar ömurleg flensa, klamydían. Landlæknir sagði að það væri auðvelt að minnka þessa tölu ef fleiri notuðu smokka. Einfalt mál eða hvað?

Hvað með að fara að hætta að finnast það í lagi að fólk hátti sig uppí rúmi með fólki sem það þekkir ekki? Er maður eitthvað klikkaður ef manni finnst það ekki í lagi? Og er það bara í lagi að börn sofi hvert hjá öðru ef þau nota smokka? Nei, þetta er bara rugl.

Sjöunda boðorðið hljómar svo: Þú skalt ekki drýgja hór. Einfalt mál. Jesú áréttar þetta og bætir við að það sé nóg að horfa á annað fólk girndaraugum til að fremja hór í huga sínum. Jesú ráðlagði okkur að elska náungann án þess að þurfa að sofa hjá honum. Og hann sagði þetta ekki vegna þess að honum væri illa við að fólk svæfi saman og skemmti sér. Hann bara vissi. Hvað ætli makaskipti og framhjáhald séu búin að eyðileggja margar fjölskyldur á Íslandi?

Boðorðin 10 eru ekki einhverjar reglur sem Móse datt í hug að setja, einn daginn bara til að vera með leiðindi. Þau eru byggð á mörgþúsund ára reynslu. Það hefur bara sýnt sig að það borgar sig ekki að gera þessa hluti. Synd er ekki að leiðrétta geðþóttaákvarðanir Guðs og njóta frelsis. Að syndga er að brjóta gegn lögmálum lífsins. Við mennirnir erum nefnilega svo miklir óvitar að við vitum oft ekki hvað við erum að skaða okkur sjálf og aðra mikið með hegðun okkar. Ef við reynum að fylgja þessum einföldu tillögum þá verður líf okkar léttara.

Að sofa hjá fólki sem maður þekkir ekki hefur slæmar afleiðingar og er tilgangslaust nema til þess eins að drepa tímann. Svo er það líka stórhættulegt. Það setur mark sitt á tilfinningalífið og hefur slæmar sálrænar jafnt sem líkamlegar afleiðingar.

Kynlíf er eins og nammi. Það er gott en maður á að njóta þess í hófi. Annars fær maður niðurgang og tannpínu og verður slæmur á taugum. Og meira sukk og frelsi með hjálp smokka og fóstureyðinga er ekki svarið. Besta getnaðarvörnin er í heilanum. Hættum að finnast í lagi að drýgja hór."

|
Ef þú vilt spjalla við mig
MSN: gunnigunn@hotmail.co.uk

Saumaklúbburinn

Netagerðarmenn:
Agnes
Ásta Rakel
Berglind
Bogi
Davíð
Dóra
Elísabet
Elsa
Freyja
Guðný Jóna
Ísak
Hermann
Helga Björk
Halldór
Hjálmar
Hjördís
Jón Örn
Ragga
Svanlaug
Sammi
Sigurður
Valdimar
Þórarinn
Myndasyrpa Gunna Gunn:
Gamalt&Gott
Á róló með Evu
Ísland-Ítalía
Djammið
Sálarböll
Daglegt Líf
Afmæli Ísaks
Chelsea-Arsenal
Framkvæmdir í Hvammi
Árshátíð Ímis 2001
Árshátíð Ímis 2003
Áramótagleði 2004
Afmæli Davíðs
Á landsliðsæfingu
Árshátíð Íslandspósts
Árshátíð Ísl.pósts (part 2)
Sálin á Nasa 7. maí 2005
Í svörtum fötum á Nasa 28. maí
Ferming Þórdísar 18. júní
Nokkrar myndir af Evu
Lanzarote í öllu sínu veldi
Lanzarote part II
Sálarball á Selfossi
Jólin 2005
Magni og Dilana á broadway
Árshátíð Íslandspósts 2006

Powered by Blogger