Það er allur vindur úr mér
Afskaplega skæð ritstífla hefur hrjáð mig að undanförnu. Svo slæm að ég hef ekki komið upp einu orði í heilan mánuð. Ætli sé til einhvað við þessu? Þetta er ansi leiðinleg pest og einkennin lýsa sér þannig að ég hef ekki hugmynd um hvað ég á að skrifa eða fjalla um. Ég á erfitt með að orða hugsanir mínar. Kannski er það ástin sem þessu veldur? Erfitt að segja en hvað sem því líður þá er ég sannfærður að ég muni sigrast á þessu ófremdarástandi sem nú ríkir. Ég bíð spenntur eftir því að andinn komi yfir mig og ég geti skrifað eins og maður á ný.
Ykkar einlægi,
Gunnar í Hvammi.
