Stórafmæli
Faðir minn er sjötugur í dag! Hjartanlega til hamingju með þann merka áfanga. Að gefnu tilefni munu öll systkinin sameinast með foreldrum sínum og snæða kvöldverð.
- Laugardagskvöldið 5. febrúar 2005 mun alltaf eiga sérstakan sess í mínu hjarta án þess að það verði tíundað í smáatriðum hér. Þó má geta þess að tónlistarmaðurinn Damien Rice, veitingastaðurinn Ítalía og skemmtistaðurinn Nasa við Austurvöll komu við sögu þetta kvöld.
