Lít ég út fyrir að vera 17 ára eða ?
Ég fór í áfengisverslun um daginn til að kaupa mér tilheyrandi guðaveigar fyrir áramótin. Þess má til gamans geta að ég fór í ÁTVR við Garðatorg í Garðabæ, alltaf svo rólegt að gera þar. En já ég var nú ekki að gera nein stórinnkaup bara breezer og bjór. Svo þegar ég kem að kassanum þá er ég spurður sérstaklega um skilríki sökum þess að ég borgaði með peningum. Okay, þetta pirraði mig svo sem ekkert en bara dáldið einkennilegt að hugsa til þess að ég sé 23ja og ennþá virðist fólk halda að maður sé undir lögaldri. Allt saman gott og blessað! Að vísu var ég reyndar með Billabong húfuna, stundum kölluð leikskólahúfan þannig að það getur hafa blekkt afgreiðslustúlkuna sem virtist nú heldur ekki hafa náð aldri til að afgreiða áfengi. Það liggur í hlutarins eðli að maður yngist alltaf um nokkur ár þegar maður setur Billabong húfuna upp. Á meðfylgjandi mynd má sjá Guðrúnu, unnustu Halldórs með húfuna góðu en hún ber hana ákaflega vel.
