been fuelin' up on cocaine and whiskey

föstudagur, desember 31, 2004


Árið gert upp

Jú ég má víst ekki vera minni maður en pappakassi.net ( Bogi ) og fröken Valdís ( Halldór ) þegar kemur að því að gera upp árið sem nú er senn á enda. Þetta var alveg prýðilegasta ár svona þegar maður lítur yfir farinn veg. Hlaupum yfir þetta á hundavaði og förum yfir það helsta. Ég byrjaði árið eftirminnilega á dansleik hjá Sálinni þar sem ég náði einstökum myndum sem komust meðal annars á batman.is og síðar í fréttablaðið. Í öndverðum febrúar fóru bílaviðskipti fram en þá losnaði ég við batman bílinn minn í skiptum fyrir BMW 750iL. Afskaplega góður 300 hestafla fákur sem kemur mér mjúklega á milli staða. Í lok mánaðarins brá ég svo undir mig betri fætinum og fór í helgarferð til London með Valda bróður. Þar tækluðum við helstu ferðamannastaði í þeirri ágætu borg og svo auðvitað hápunkturinn leikur Chelsea-Arsenal á Stamford Brigde sem var alveg hin mesta skemmtun. Í mars tók ég fjöldskylduandann á þetta og skellti ég mér á skauta með frænkum mínum. Það var svo gaman að ég held að stefnan sé að endurtaka leikinn á nýju ári. Um sumarið var ýmislegt brallað. Við, menntaskólakumpánar sprikluðum einhvað í fótbolta og einnig fórum við í Go-Kart hjá Smáralindinni. Þar var undirritaður ekki að gera gott mót og var vinsamlegast beðinn að víkja fyrir þeim er hraðar fóru yfir. Mig minnir að Bogi hafi verið í sérflokki í þessu. Ég man að ég fór á fína tónleika með bresku hljómsveitinni Starsailor í júní á Nasa við Austurvöll ásamt því að ég tók að mér barnfóstruhlutverkið og fór á róló með Evu Hlíf og tók flottar myndir af systurdóttur minni þar. Stórfjöldskyldan í Hvammi sameinaðist í sumarbústað Morgunblaðsins í Biskupstungunum í júlí. Ég fór á Laugardalsvöll 18. ágúst og sá Ísland vinna Ítalíu 2-0 í vináttuleik þar sem áhorfendamet var slegið. Fleiri met voru slegin í ágúst því hitamet var sett í Reykjavík þegar hitastigið fór í 25 gráður. Ekki má gleyma mjög svo skemmtilegu tvítugsafmæli hjá Ísak samstarfsmanni mínum. September var mjög merkilegur mánuður en þá ákváðum við, ábúendur í Hvammi að ráðast í framkvæmdir og endurnýjuðum þakið á gamla kofanum. Á svölum morgni í október brá ég mér á landsliðsæfingu og fékk mér mynd með Íþróttamanni ársins 2004 og leikmanni Chelsea, Eið Smára Gudjohnsen. Undir lok október var svo árshátíð Íslandspóst haldin hátíðleg á Broadway og var það hið ágætasta djamm. Í byrjun nóvember var svo brjáluð endurkoma Sálarinnar á Nasa og þar var Gunni Gunn að sjálfsögðu mættur í öllu sínu veldi. Jólin hafa svo leikið við mig. Ég gaf margar fallegar gjafir sem hittu í mark hjá ungviðinu og glöddu lítil hjörtu enda miklu sælla að gefa en þiggja. Takk fyrir að vera til gott fólk og takk fyrir að lesa síðuna mína, vonandi mun árið 2005 verða mér og ykkur öllum jafn gæfuríkt og það sem er að líða hjá.

|
Ef þú vilt spjalla við mig
MSN: gunnigunn@hotmail.co.uk

Saumaklúbburinn

Netagerðarmenn:
Agnes
Ásta Rakel
Berglind
Bogi
Davíð
Dóra
Elísabet
Elsa
Freyja
Guðný Jóna
Ísak
Hermann
Helga Björk
Halldór
Hjálmar
Hjördís
Jón Örn
Ragga
Svanlaug
Sammi
Sigurður
Valdimar
Þórarinn
Myndasyrpa Gunna Gunn:
Gamalt&Gott
Á róló með Evu
Ísland-Ítalía
Djammið
Sálarböll
Daglegt Líf
Afmæli Ísaks
Chelsea-Arsenal
Framkvæmdir í Hvammi
Árshátíð Ímis 2001
Árshátíð Ímis 2003
Áramótagleði 2004
Afmæli Davíðs
Á landsliðsæfingu
Árshátíð Íslandspósts
Árshátíð Ísl.pósts (part 2)
Sálin á Nasa 7. maí 2005
Í svörtum fötum á Nasa 28. maí
Ferming Þórdísar 18. júní
Nokkrar myndir af Evu
Lanzarote í öllu sínu veldi
Lanzarote part II
Sálarball á Selfossi
Jólin 2005
Magni og Dilana á broadway
Árshátíð Íslandspósts 2006

Powered by Blogger