Ég er jólastrákur
Hæ allir! Mig langaði endilega að skrifa nokkrar línur úr því að einn lesandi síðunnar er farinn að kvarta undan því að ég sé svo latur við skriftir. Mér finnst alltaf svo vænt um það þegar fólk vill fá meira frá Gunnanum sínum. Að þessu sinni langar mig að hrinda af stað jólagetraun. Veit ekki hvernig þið takið í þetta, vonandi fær þetta góðar viðtökur. Þar sem ég er mikill aðdáandi íslenskra jólalaga og kominn í klikkað jólaskap eins og segir í laginu þá mun ég koma með nokkur vel þekkt textabrot á okkar ylhýra máli og ætla ég að athuga kunnáttu ykkar á þessu sviði. Það er til mikils að vinna því að í verðlaun er nafnbótin jólasöngtexta snillingurinn 2004 hvorki meira né minna. Vinsamlegast nefnið bæði heiti lags og flytjanda. Hér koma eftirfarandi textabrot:
Gimsteina og perlur, gullsveig um enni, sendi ég henni ástinni minni.
Jólin eru að koma, jólin koma senn, jólin eru tíminn þegar hjarta mitt er sátt við guð og menn.
Fæ ekkert svar ég sit hér einn og dagurinn dvín, hljóður við jólatré set ég gjöf frá mér til þín.
En nú er þetta breytt, það bara gerist ekki neitt og tíminn rótast ekkert og aldrei koma jólin.
Aðfangadagur ég bíð eftir jólunum spenntur, mamma segir að jólasveinninn sé lentur.
Æ svona reynið nú að setjast, slappa af og hætta að metast og gleðjast því það eru að koma jól.Gangi ykkur vel !!!
