Brátt koma blessuð jólin
Jæja, lesandi góður þá er komið að vali á bestu ljósmynd ársins 2004 hjá Gunna Gunn. Ég hef ákveðið að tilnefna 12 myndir sem ég hef tekið á árinu og nú langar mig að biðja ykkur um einfaldan greiða. Þetta er einfalt og þægilegt. Þú skoðar þessar 12 myndir og lætur svo skoðun þína í ljós í kommentakerfinu. Myndir
Eru óðalsbændur í Hvammi ekki að undirbúa komu jóla þessa dagana? Þessari spurningu var varpað fram hér fyrir fáeinum dögum. Jú, svo sannarlega er bóndasonurinn í Hvammi að undirbúa sig og sína fjölskyldu fyrir þá miklu hátíð sem er að ganga í garð. Það er ekkert kæruleysi í gangi. Strákurinn er búinn að skera út laufabrauð, býsna langt kominn hvað jólagjafainnkaupin varðar og að sjálfsögðu sá ég algjörlega um allar skreytingar utan dyra. Fékk mér svo jólaklippinguna í dag þannig að ég er bara í nokkuð góðum málum. Einnig er gaman að segja frá því að kappinn er dottinn í jólafrí til að njóta jólanna enn betur. En jæja börnin mín ég bið ykkur vel að lifa og reyna að njóta jólanna sem best, elskiði friðinn og strjúkið á ykkur kviðinn. Gleðileg jól.
