been fuelin' up on cocaine and whiskey

mánudagur, nóvember 08, 2004


Mikil ölvun í gangi

Smelltu ? myndina til ad st?kka Uss, þetta var nú meiri helgin, skandalar og læti. Gunni Gunn djammaði aðra helgina í röð og spurning hvort hann þurfi ekki að panta sér tíma á Vogi ef heldur áfram sem horfir. Strákurinn var vel brattur á því og skipulagði partý á Rauðarárstígnum hjá Ástu frænku þar sem fór fram eins konar upphitun fyrir Sálarball á Nasa. Benni mætti á svæðið með gítarinn og tókum við nokkra eldheita sálarslagara og stemmningin var gríðarleg. Þar sem gestir voru ekki alveg með textana á hreinu þurfti ég að stýra fjöldasöngnum og tókst mér bara bærilega upp þó ég segi sjálfur frá. Enda kann ég allflest sálarlögin líkt og um faðir vorið væri að ræða. Þegar ölvun var orðin slík að menn vissu vart í þennan heim né annan lá leiðin á Nasa. Endurkoma Sálarinnar virtist hitta vel í mark því húsið var kjaftfullt. Að sjálfsögðu tók ég mér stöðu fremst við sviðið eins og ég á vanda til. Þar gerðist stúlka nokkur ansi ágeng við kappann og vildi greinilega ná sér í öndvegis mannsefni. Þó ég hafi aðeins spilað með til að byrja með og tekið þátt í einhverjum faðmlögum auk fleiri viðlíka ástaratlota rann þó upp fyrir mér ljós um síðir. Þessi ágæta snót var ekki alveg minn tebolli, sérstaklega þegar fór að renna af mér mesta áfengisbölið og ég gat farið að hugsa ögn skýrar. Ég lét mig því hverfa út úr gamla sjálfstæðishúsinu við Austurvöll tiltölulega sáttur við guð og menn en þó sérstaklega að vera laus úr klóm þessa ágenga kvenmanns sem ætlaði að éta mig upp til agna. Úff ég segi ekki meir. Að lokum vil ég þakka Ellý fyrir skemmtilegt djamm.

|
Ef þú vilt spjalla við mig
MSN: gunnigunn@hotmail.co.uk

Saumaklúbburinn

Netagerðarmenn:
Agnes
Ásta Rakel
Berglind
Bogi
Davíð
Dóra
Elísabet
Elsa
Freyja
Guðný Jóna
Ísak
Hermann
Helga Björk
Halldór
Hjálmar
Hjördís
Jón Örn
Ragga
Svanlaug
Sammi
Sigurður
Valdimar
Þórarinn
Myndasyrpa Gunna Gunn:
Gamalt&Gott
Á róló með Evu
Ísland-Ítalía
Djammið
Sálarböll
Daglegt Líf
Afmæli Ísaks
Chelsea-Arsenal
Framkvæmdir í Hvammi
Árshátíð Ímis 2001
Árshátíð Ímis 2003
Áramótagleði 2004
Afmæli Davíðs
Á landsliðsæfingu
Árshátíð Íslandspósts
Árshátíð Ísl.pósts (part 2)
Sálin á Nasa 7. maí 2005
Í svörtum fötum á Nasa 28. maí
Ferming Þórdísar 18. júní
Nokkrar myndir af Evu
Lanzarote í öllu sínu veldi
Lanzarote part II
Sálarball á Selfossi
Jólin 2005
Magni og Dilana á broadway
Árshátíð Íslandspósts 2006

Powered by Blogger