Digital Ísland + slagsmál í NBA
Jæja, þá erum við hér á sveitasetrinu í Hvammi dottin í digital crazyness-ið sem tröllríður öllu þessa dagana. Loksins sér maður betur og hver veit nema að gleraugun endi í ruslinu slík eru gæði myndarinnar. Já, strákurinn er heldur betur sáttur með stafrænakvikindið og horfði á sjónvarpið alla helgina enda bara rugl að fara út í þennan skítakulda sem ríkir nú á fróni. Idol þátturinn olli vonbrigðum og reyndist afar lélegur þar sem aðeins einn boðlegur keppandi (Brynja) mætti á svæðið. En yfir í annað. - Mikil og ljót slagsmál brutust út í leik Detroit og Indiana í NBA deildinni í körfubolta. Atvikið átti sér stað undir lok leiksins og byrjaði þannig að leikmönnum liðanna lenti saman en svo kastaði einn áhorfandi einhverju íláti í einn leikmann Indiana og þar með varð allt vitlaust og leikmenn og áhorfendur slógust eins og hundar og kettir. Endilega kíkið á þessa uppákomu hér sem var í íþróttafréttum Stöðvar 2 á laugardagskvöldinu. Það er Hörður Magnússon sem fer á kostum í lýsingu sinni. Þetta er rosalegt.
