Mikill gleðskapur og djamm framundan
Því miður verð ég að tilkynna að ég verð fjarri góðu gamni þegar árshátíð ímirs verður haldin hátíðleg um næstu helgi. Ég hef verið viðstaddur allar þrjár hátíðir sem haldnar hafa verið innan þessa ágæta drykkjufélags og ávallt hefur verið mikil drykkja og mikil gleði. Fyrst ber að nefna frábæra hátíð sem Halldór Ási stóð fyrir, þar varð ég svo draugfullur að mér tókst að týna bikar er mér var afhentur þegar ég stóð uppi sem sigurvegari í pool-móti ímirs. Og gott ef ekki þá var mér hent út af Sportkaffi sáluga í þokkabót fyrir drykkjulæti mín þetta sama kvöld. Man þetta ekki svo gjörla. Mér hlotnaðist svo hinn mikli heiður að halda hátíðina á mínu óðalssetri í Hvammi næstu tvö árin og var þar um að ræða afar velheppnaða mannfagnaði. Ástæða fjarveru minnar er sú að ég ætla að mæta á árshátíð fyrirtækis þess er ég vinn fyrir í dag. Líkt og í fyrra þá ber þessa tvo viðburði upp á sama dag. Í fyrra vantaði sjálfan formanninn en í ár mun Gunni Gunn verða fjarverandi. Ég óska öllum góðrar skemmtunar og vonast til þess að mín verði ekki sárt saknað.
