been fuelin' up on cocaine and whiskey

fimmtudagur, október 07, 2004


Með stjörnur í augum

Smelltu ? myndina til ad st?kka Gunni Gunn var heldur betur árrisull og brá sér á morgunæfingu hjá íslenska landsliðinu í knattspyrnu. Létt var yfir mönnum, engir blaðamenn voru viðstaddir æfinguna og veðrið var með prýðilegasta móti miðað við árstíma enda alltaf sól í Kópavoginum. Æfingin gekk vel að sögn Loga Ólafssonar og menn í fínu standi fyrir átökin gegn Möltu en eins og allir vita etja strákarnir kappi við Maltverja á laugardag ytra. Einnig er gaman að segja frá því að vitleysingarnir í 70 mínútum á Popp Tíví voru mættir á svæðið og sprelluðu eins og þeim einum er lagið. Að lokinni æfingu gaf sjálfur fyrirliðinn Eiður Smári sér tíma fyrir myndatöku en það var ekki lakari maður sem var bakvið myndavélina, varnarjaxlinn sterki í Charlton, Hermann Hreiðarsson. Það má því segja að öllu hafi verið tjaldað til og ánægjulegt að fá þessa mynd hér á mínum heimaslóðum. Eins og sjá má á myndinni er Mister Gudjohnsen að sjálfsögðu með alvöru keppnis tan þannig að ég lít út eins og draugur við hliðina á honum. Spurning um að skella sér í ljós þrisvar í viku og vinna í mínum málum??

|
Ef þú vilt spjalla við mig
MSN: gunnigunn@hotmail.co.uk

Saumaklúbburinn

Netagerðarmenn:
Agnes
Ásta Rakel
Berglind
Bogi
Davíð
Dóra
Elísabet
Elsa
Freyja
Guðný Jóna
Ísak
Hermann
Helga Björk
Halldór
Hjálmar
Hjördís
Jón Örn
Ragga
Svanlaug
Sammi
Sigurður
Valdimar
Þórarinn
Myndasyrpa Gunna Gunn:
Gamalt&Gott
Á róló með Evu
Ísland-Ítalía
Djammið
Sálarböll
Daglegt Líf
Afmæli Ísaks
Chelsea-Arsenal
Framkvæmdir í Hvammi
Árshátíð Ímis 2001
Árshátíð Ímis 2003
Áramótagleði 2004
Afmæli Davíðs
Á landsliðsæfingu
Árshátíð Íslandspósts
Árshátíð Ísl.pósts (part 2)
Sálin á Nasa 7. maí 2005
Í svörtum fötum á Nasa 28. maí
Ferming Þórdísar 18. júní
Nokkrar myndir af Evu
Lanzarote í öllu sínu veldi
Lanzarote part II
Sálarball á Selfossi
Jólin 2005
Magni og Dilana á broadway
Árshátíð Íslandspósts 2006

Powered by Blogger