Afskaplega skemmtilegt í alla staði
Glaumur, gleði og töluverð hamingja já og vænn skammtur af ölvun eru hlutir sem einkenna einatt árshátíðir og sú varð einnig raunin með Árshátíð Íslandspósts sem haldin var á Broadway um helgina. Þriggja rétta málsverður hljóðaði uppá sjávarréttasúpu í forrétt, lambafille í aðalrétt og svo var víst einhver vanilluís í eftirrétt sem fór algerlega framhjá mér. Ykkur að segja þá skemmti ég mér alveg prýðilega, strákurinn búinn að vinna vel í sínum málum og hressa uppá grímuna, orðinn brúnn og bara nokkuð nettur á því. Þýðir ekkert annað en að líta vel út eins og Mister Gudjohnsen. Þannig að þetta var bara gaman. TNT gaurarnir voru heldur betur grand á því og leigðu sér herbergi á Hótel Íslandi og fyrir mér var hápunkturinn þegar Ísakinn þessi mikli gítarsnillingur tók sín frumsömdu lög sæta stelpa og cock a doodle do. Bítlavinafélagið sá svo um að trylla lýðinn á dansgólfinu langt fram eftir nóttu en þess má geta að Stefán Hilmars var gestasöngvari hjá þeim. Engu að síður komst ég aldrei á neitt svakalegt flug við þessa tónlist sem þarna var leikinn, að vísu heyrðust nokkrir góðir slagarar inná milli eins og danska lagið, hann fer í ljós þrisvar í viku og við lifum aðeins einu sinni og einhvað meira sem ég man ekki í svipinn.
