Margar hendur vinna létt verk
Það voru heldur betur framkvæmdir í Hvammi um síðastliðna helgi. Allflestir fjölskyldumeðlimir sáu sér fært að mæta þegar miklar endurbætur á þaki húsins fóru fram. Aðeins Ólafur bróðir, óðalsbóndi undir Eyjafjöllum var fjarri góðu gamni. Það þótti tímabært að endurnýja járnið á þaki gamla kofans enda byggði pabbi húsið árið 1957 og þar af leiðandi sumt járnið nærri hálfrar aldar gamalt. Blessunarlega lék veðrið við okkur þrátt fyrir talsverða úrkomu á laugardagsmorgninum. Allir hjálpuðust að, konurnar sáu um eldamennsku meðan vaskir menn sáu til þess að nýtt þak kæmist yfir höfuð okkar ábúenda í Hvammi. Kunnum við öllum sem lögðu hönd á plóg hinar mestu og bestu þakkir fyrir ósérhlífni, hjálpsemi og dugnað. Myndir frá helginni má finna á hægri kantinum. - Einnig get ég glaðst yfir þeirri staðreynd að mér bárust þær fréttir um helgina að mín ástkæra hljómsveit sálin hans jóns míns mun stíga á stokk á ný í vetur. Mun endurkoma þeirra vera í nóvember og staðsetning er hinn sívinsæli skemmtistaður Nasa við Austurvöll en þar ku víst Íslendingum finnast skemmtilegast að djamma, sel það þó ekki dýrara en ég keypti.
