Accidentally In Love
Hvað gerðiru um helgina? Ekki óalgeng spurning eftir mestu ferða og sukkhelgi ársins. Ég er ekki þessi mikli útihátíðaraðdáandi sem allir halda að ég sé og fór því ekki út fyrir borgarmörkin. Ég skellti mér hins vegar í bíó með litlu frænku minni á Shrek 2. Sérlega skemmtileg mynd og alveg hönnuð til að koma manni í gott skap. Einnig kíkti ég á hina vinsælu og fjölmennu samkomu EY-2004 sem haldin var við hátíðlega athöfn á Hagatorgi í annað sinn. Gríðarleg stemmning og löggan mætti á svæðið eins og í fyrra. Það er víst bannað að tjalda á hringtorgi.
