Gísli Freyr hetja HK
Löngum hefur Breiðablik verið talið stærra liðið í Kópavogi og yfirleitt hafa Blikar farið með sigur af hólmi í viðureignum þeirra við HK og skemmst er að minnast 13-0 sigursins hér um árið. En nú er öldin hins vegar önnur og spurning hvort sé að rísa upp nýtt stórveldi í Kópavoginum? Tek ég slíkum fréttum fagnandi því bæjarfélag á stærð við Kópavog á að eiga félag í úrvalsdeild að mínu mati. Annað er til skammar. Það var aldeilis rosalegur grannaslagur sem fram fór á Kópavogsvelli þegar Breiðablik og HK áttust við í 1. deild karla í knattspyrnu í gærkvöld. Því miður þá var ég upptekinn við vinnu þannig að ég komst ekki á völlinn. En gangur leiksins var einhvað á þessa leið. Blikar komust yfir snemma leiks en HK jafnaði rétt fyrir leikhlé. Aftur náðu hinir grænklæddu forystu í seinni hálfleik og ætluðu að freista þess að halda fengnum hlut. En varamaðurinn Gísli Freyr Ólafsson, knattspyrnukappi okkar Ímirsmanna var á öðru máli, hann gerði sér lítið fyrir og skoraði tvö mörk í uppbótartíma og tryggði HK-ingum glæsilegan 3-2 sigur. Gríðarlega mikilvæg úrslit fyrir HK í toppbaráttunni en þeir tróna nú á toppi 1.deildarinnar. Einnig má geta þess að HK er komið í 8 liða úrslit í bikarkeppni KSÍ eftir frækilegan sigur á Bikarmeisturum Skagamanna. Ég sem sannur Kópavogsbúi vona svo sannarlega að þessi óvænta og jafnframt skemmtilega sigurganga muni halda áfram.
