Sól og blíða
Það var aldeilis fínt veður í gær mánudaginn 21. júní. Hitastigið eins og það gerist hvað best hér á klakanum og alveg tilvalið að hvíla sig á tuðrusparkinu í sjónvarpinu, skella sér í bæinn með Ástu frænku og taka púlsinn á mannlífinu í miðbænum. Á Austurvelli var fjöldi sóldýrkenda sem nutu veðurblíðunar og þar hitti ég minn ástkæra vinnufélaga Ísak pósttöffara og Hrefnu póstgellu. Við, ég og bróðirdóttir mín, tókum því næst stefnuna upp Laugaveginn þar sem hinar ýmsu verslanir voru tæklaðar í góðu glensi. Til að fullkomna velheppnaða bæjarferð gáfum við öndunum á tjörninni brauð og fengum okkur svo bragðaref á Snælandi en það er afar nauðsynlegt að kæla sig niður á svona sólríkum degi. - Ég var að fá bréf þess efnis að ég mun ekki setjast á skólabekk næsta haust. Metaðsókn var í Kennaraháskólann og komast færri að en vilja. Ég fékk synjun um skólavist þannig að Íslandspóstur mun njóta starfskrafta minna örlítið lengur. Það þýðir ekkert að gráta Björn bónda heldur bara safna liði.
