Lifi forsetinn
Another saturday night and I ain’t got nobody, I got some money cause I’ve just got paid. Now how I wish I had someone to talk to, I’m in an awful way.
Eins og sannur Íslendingur fór ég á kjörstað í dag og notaði þann lýðræðislega rétt sem við öll eigum að nýta okkur, að kjósa. Mér finnst alltaf dáldið skemmtilegur sjarmi yfir kosningum. Ég hef það alla vega fyrir reglu að vera ávallt huggulegur í klæðaburði þegar ég mæti á kjörstað. Minn kjörstaður er Kópavogsskóli, mitt gamla æskuheimili til fjölda ára. Pínulítið skondið en þegar ég ætlaði að fara að krossa við þann frambjóðanda sem ég ætlaði mér að kjósa þá brotnaði blýið í blýantnum. Kannski merki um að ég hafi verið að kjósa vitlaust??? Erfitt að segja. Svo finnst mér alveg ótrúlega merkilegt miðað við hvað þessi athöfn tekur skamman tíma þá tekst manni alltaf að hitta einhvern sem maður kannast við frá gamalli tíð. Gaman að slíku.
It’s hard on a fella when he don’t know his way around. If I don’t find me a honey to help me spend my money I’m gonna have to blow this town.
