Sveitasæla
Það er alltaf gaman að fara í sveitina. Hvíla sig á skarkala borgarinnar, allri umferðinni og öllum látunum sem fylgir því að búa í þéttbýli. Það jafnast fátt við að anda að sér fersku og tæru sveitalofti, njóta kyrrðarinnar sem strjálbýlið hefur upp á að bjóða og finna hvernig angurvær ró umlykur sálina. Dálítið ljóðrænn inngangur hjá mér en engu að síður þá held ég að það sé ákaflega hollt að sækja landsbyggðina einstaka sinnum heim. Ég ákvað að leggja land undir fót um nýliðna helgi og bregða mér til systur minnar sem býr í litlu þorpi sem staðsett er á Suðurlandi. Yfirleitt þjóta ökumenn framhjá þessum stað án þess að veita honum sérstaka athygli, í mesta lagi stíga kannski út úr bílnum sínum til að setja bensín á bílinn. Hella heitir þessi litli, fallegi og vinalegi bær sem liggur við þjóðveg eitt og lætur ekki mikið yfir sér. Þar hefur systir mín búið ásamt fjöldskyldu í hartnær tuttugu ár. Hún rekur sitt eigið fyrirtæki Helluskeifur og hefur sú framleiðsla á skeifum getið af sér gott orð hjá hestamönnum þessa lands. Samkvæmt minni kunnáttu og þekkingu á þessu sviði ( þó hún sé reyndar af skornum skammti ) þá tel ég að þessi íslenska framleiðsla hjá systur minni standi erlendum innflutningi miklu mun fremur í gæðum.
En víkjum sögunni aftur að heimsókn minni. Svo heppilega vildi til að Bubbi var með tónleika á Kristjáni tíunda ölstofu bæjarins og slíkur viðburður gat ég með nokkru móti látið framhjá mér fara. Bubbi spilaði lög af væntanlegri plötu sem kemur út seinna á árinu og spjallaði á milli um ríkisstjórn landsins, hversu þreyttur hann væri orðinn á Davíð Oddssyni og hafði miklar og sterkar skoðanir á fjölmiðlafrumvarpinu. Ég var virkilega sáttur með þessa tónleika, frumflutningur á nýjum lögum sem hljómuðu býsna vel við fyrstu hlustun. Frekar fámennt en staðurinn bauð heldur ekki uppá mikinn fjölda, kósý stemmning sveif yfir vötnum og ég var hæstánægður með þessa helgarferð.
