Ég mun leita réttar míns í þessu máli
Það er ósköp venjulegur sunnudagsmorgunn. Strákur með stírur í augum les fréttablaðið og borðar sitt Cerrios í rólegheitum. Það er algjörlega lögboðinn skylda hjá mér að lesa einhvað dagblað eða annað lesefni meðan ég japla á morgunmatnum. ég verð að lesa eitthvað annars er eins og ég hafi farið öfugu megin framúr, það má alls ekki spilla svona órjúfanlegum hefðum. Fréttablaðið varð fyrir valinu þennan morguninn þar sem ég hafði lokið við að lesa Morgunblaðið sem hafði komið kvöldið áður. Þegar ég var kominn á blaðsíðu 23 í Baugstíðindum eins og forsætisráðherrann okkar kallar blaðið þá bregður mér hins vegar talsvert í brún, svo mikið að ég hélt að morgunkornið myndi standa í mér. Hvaða déskotans aðili hefur stolist til að setja þessa mynd í blaðið??!! sem nota bene ég tók á Broadway um síðustu áramót án þess að spyrja mig um leyfi. Myndin er af Eydísi Eir stelpunni með djöflahornin, þeirri sömu er flaggaði brjóstum og komst svo eftirminnilega á batman.is. Eydís vann sér það til frægðar að vera sigurvegari í blautbolskeppni X-ins sem haldin var á dögunum og fjallar greinin að mestu um það. Hvergi er fjallað um ljósmyndarann? Hvergi er tekið fram hver tók þessa mynd sem fygldi fréttinni né hvar hún var tekin. Ég tel að hér sé klárlega um brot á höfundarrétti að ræða. Myndin er í minni eigu og hún var tekin á Sálarballi. Á hinn bóginn svo ég líti nú á björtu hliðarnar þá er ég afar stoltur að myndirnar mínar hafi notið eins mikilla vinsælda og raunin hefur orðið. Kannski ég ætti að gerast ljósmyndari? ALLIR AÐ SKOÐA FRÉTTABLAÐIÐ Í DAG!!!
