been fuelin' up on cocaine and whiskey

laugardagur, maí 01, 2004


Ef þú spilar til að vinna

Smelltu ? myndina til ad st?kka Að geta sér til um úrslit leikja er ótrúlega spennandi og skemmtilegt áhugamál sem við strákarnir höfum verið að stunda undanfarnar vikur. Enski boltinn er vinsæll sem aldrei fyrr og maður fylgist ætíð með af miklum móð um helgar. Að freista gæfunnar og tippa á þar tilgerðan enskan seðil gerir þetta nefnilega ennþá áhugaverðara. Ég ákvað að taka daginn snemma í morgun og rölta upp í sjoppu og fylla út seðil. Það jafnast fátt á við göngutúr til að koma blóðrásinni af stað í morgunsárið. Heyra fuglasönginn í morgunkyrrðinni gerir það að verkum að maður vaknar betur til lífsins. Ég er ótrúlega getspakur að eðlisfari enda kom það í ljós síðar um daginn að ég var með 11 leiki rétta af 13. Ég geri fastlega ráð fyrir því að það verði einskonar hefð hjá mér í framtíðinni að vakna snemma á laugardagsmorgnum. Mancester United og Sunderland sáu til þess að ég fékk ekki 13 rétta. Gunni Gunn sá ástæðu til að fagna þessum litla vinningi sínum líkt og Arsenal leikmennirnir hér til hliðar. En eins og allir vita eru Arsenal orðnir Englandsmeistarar og stefna á að verða fyrsta liðið frá stofnun úrvalsdeildarinnar til að komast í gegnum heilt keppnistímabil án þess að tapa leik. Það yrði mikið afrek ef svo fer.

|
Ef þú vilt spjalla við mig
MSN: gunnigunn@hotmail.co.uk

Saumaklúbburinn

Netagerðarmenn:
Agnes
Ásta Rakel
Berglind
Bogi
Davíð
Dóra
Elísabet
Elsa
Freyja
Guðný Jóna
Ísak
Hermann
Helga Björk
Halldór
Hjálmar
Hjördís
Jón Örn
Ragga
Svanlaug
Sammi
Sigurður
Valdimar
Þórarinn
Myndasyrpa Gunna Gunn:
Gamalt&Gott
Á róló með Evu
Ísland-Ítalía
Djammið
Sálarböll
Daglegt Líf
Afmæli Ísaks
Chelsea-Arsenal
Framkvæmdir í Hvammi
Árshátíð Ímis 2001
Árshátíð Ímis 2003
Áramótagleði 2004
Afmæli Davíðs
Á landsliðsæfingu
Árshátíð Íslandspósts
Árshátíð Ísl.pósts (part 2)
Sálin á Nasa 7. maí 2005
Í svörtum fötum á Nasa 28. maí
Ferming Þórdísar 18. júní
Nokkrar myndir af Evu
Lanzarote í öllu sínu veldi
Lanzarote part II
Sálarball á Selfossi
Jólin 2005
Magni og Dilana á broadway
Árshátíð Íslandspósts 2006

Powered by Blogger