been fuelin' up on cocaine and whiskey

miðvikudagur, maí 05, 2004


Chelsea úr leik í Meistaradeild Evrópu

Smelltu ? myndina til ad st?kka Það vissu allir sem einhvað vit hafa á fótbolta að róðurinn hjá Chelsea yrði erfiður gegn Mónakó í seinni leik liðanna í Meistaradeild Evrópu. Eftir slæmt tap á útivelli 3-1 þar sem þeir frönsku fóru á kostum einum færri og léku við hvurn sinn fingur var ljóst að Eiður smári og félagar yrðu að eiga toppleik til að geta komist áfram í úrslitaleikinn gegn Porto frá Portúgal. Allt virtist ganga eins og í sögu því Daninn Jesper Gronkjaer kom Chelsea yfir um miðjan fyrri hálfleik með glæsilegu marki sem var ef til vill fyrirgjöf. Nú eigðu menn von í brjósti. Óskin rættist skömmu síðar þegar Eiður gaf snyrtilega sendingu á "super" Frank Lampard sem kom Chelsea í 2-0 og undirritaður ærðist af fögnuði. Þessar lokatölur hefðu tryggt Chelsea áfram. En Adam var ekki lengi í paradís því hinn ótrúlegi Morientes og þeirra snjalli vængmaður Rothen sáu um að þagga niður í fögnuði þeim er myndast hafði í Hvammi. Síðari hálfleikur var martröð og sé ég ekki ástæðu til í að fjalla mikið um hann. Morientes gekk frá þessum leik enda ógjörningur að skora þrjú mörk á hálftíma gegn svona sterku og velskipulögðu liði eins og Mónakó liðið er. Ég tel að, ef þeim bláu hefði tekist að fara inní leikhléið með 2-0 forystu þá hefði Ranieri og hans menn getað þraukað til leiksloka. En það er alltaf þetta stóra ef. Ef og hefði og ef svo væri að páskarnir væru á jólunum. Hér á myndinni til hliðar sést Eiður Smári Gudjohnsen þegar dómarinn hafði flautað til leiksloka. Chelsea out of Champions Leauge. Strákurinn hágrét enda er alls óvíst að hann fái annað tækifæri til að komast í sjálfan úrslitaleikinn í þessari mögnuðu keppni.

|
Ef þú vilt spjalla við mig
MSN: gunnigunn@hotmail.co.uk

Saumaklúbburinn

Netagerðarmenn:
Agnes
Ásta Rakel
Berglind
Bogi
Davíð
Dóra
Elísabet
Elsa
Freyja
Guðný Jóna
Ísak
Hermann
Helga Björk
Halldór
Hjálmar
Hjördís
Jón Örn
Ragga
Svanlaug
Sammi
Sigurður
Valdimar
Þórarinn
Myndasyrpa Gunna Gunn:
Gamalt&Gott
Á róló með Evu
Ísland-Ítalía
Djammið
Sálarböll
Daglegt Líf
Afmæli Ísaks
Chelsea-Arsenal
Framkvæmdir í Hvammi
Árshátíð Ímis 2001
Árshátíð Ímis 2003
Áramótagleði 2004
Afmæli Davíðs
Á landsliðsæfingu
Árshátíð Íslandspósts
Árshátíð Ísl.pósts (part 2)
Sálin á Nasa 7. maí 2005
Í svörtum fötum á Nasa 28. maí
Ferming Þórdísar 18. júní
Nokkrar myndir af Evu
Lanzarote í öllu sínu veldi
Lanzarote part II
Sálarball á Selfossi
Jólin 2005
Magni og Dilana á broadway
Árshátíð Íslandspósts 2006

Powered by Blogger