Vandi fylgir vexsemd hverri
Ég get ekki sagt að ég hafi ljómað af gleði þegar úrslitin í Gettu Betur láu ljós fyrir eftir magnþrungna og afar spennandi keppni síðast liðið föstudagskvöld. Borghyltingar sem heilluðu þjóðina í undanúrslitum þegar þeir gerðu sér lítið fyrir og slógu út MR, Reykjarvíkurstórveldið við tjörnina eftir 11 ára óslitna sigurgöngu urðu að bíta í það súra epli að tapa fyrir Versló í bráðabana. Langflestir að ég tel ef marka má fólkið á götunni vonaðist eftir sigri Borgó. Skoðanakönnun á drykkja.com tók af allan vafa.
Þessi úrslit voru eiginlega alveg sárgrætilegt í ljósi þess að fyrir þremur árum þá töpuðu Borghyltingar fyrir MR einnig í bráðabana. Mér fannst einhvern veginn vera kominn tími á Borgó en sú varð aldeilis ekki raunin. Skemmtileg umræða um keppnina er að finna á heimasíðu Stefáns Pálssonar dómara.
