Sérdeilis fyndið og skemmtilegt
Ég varð vitni að töluvert góðri og broslegri dægrastyttingu sem menn geta leikið eftir ef þeir vita ekkert hvað þeir eiga að gera af sér á blíðviðris dögum í sumar. Þannig er mál með vexti að ég var á keyrslu um mitt ástkæra bæjarfélag að sinna vinnuskyldum mínum eins og duglegum, vinnusömum ungum manni sæmir. Þess má geta að ég var nákvæmlega staddur í vesturbænum sem er ekkert síðri bæjarhluti þó svo að ég búi í austurbænum. En gott og vel ég var að keyra fyrir aftan tvo bíla og tek fljótlega eftir því að það eru strákar nýkomnir með bílpróf sem voru ökumenn og farþegar í þessum bílum. Skyndilega fljúga út úr bílunum vatnsblöðrur sem lentu á fótgangandi einstaklingum, sem urðu flestir hverjir ansi hvumsa við þetta uppátæki drengjanna. Mér varð hugsað til vitleysinganna í sjötíu mínútum. Þessi hrekkur var algjörlega í svipuðum anda og ég gat ekki varist hlátri þegar ég sá þetta gerast. Ótrúlega fyndið og saklaust prakkarastrik sem gaman er að stunda þegar gott veður er úti og einmitt vel við hæfi að óska fólki gleðilegs sumars með eins og einni vatnsblöðru meðan það bíður eftir strætó. Ha, er rigning???
