Besti hamborgarinn
Það er greinilegt að bragðskyn lesenda síðunnar er í góðu lagi og fólk þarna úti er gríðarlega vel með á nótunum þegar kemur að góðri matargerð. American Style fékk langflest atkvæði og jafnframt vil ég koma því á framfæri að það er massagott tilboð í gangi hjá þeim þessa dagana. Milli klukkan 13 og 18 alla daga er hægt að fá ostborgara, franskar og kók á aðeins 595 kr. Hlægilega ódýrt ekki satt enda hefur undirritaður verið nánast fastagestur á Stylaranum að undanförnu. Einnig finnst mér ákaflega gaman að segja frá því að Kópavogsnesti varð í öðru sæti. Þannig að bestu hamborgana er augljóslega að finna á Nýbýlaveginum.
