Bólu-Hjálmar kynntur til leiks
Bólu-Hjálmar var afar vænn piltur, óhemju samviskusamur, þolinmóður, löghlýðinn, yfirvegaður, léttur í lundu, rauðhærður, ótrúlega skapstilltur, umburðarlyndur og hið mesta ljúfmenni í alla staði. Það ríkti ávallt mikil glaðværð og friðsæld þar sem Hjálmar gekk um, hann þótti skáld gott, orðsnjall og spaugsamur í tilsvörum. Í kringum Bólu-Hjalla eins og hann var oftast kallaður þá urðu menn friðsamir ef ósætti ríkti, sliðruðu menn þá gjarnan sverð sín og féllust jafnvel í faðma. Það sem einkenndi Hjálmar einna helst frá sínum jafnöldrum var hversu kærleiksríkur hann þótti, áflog, illdeilur og allskyns óprúttin viðskipti voru ekki liðin í hans héraði. Slíkur ófögnuður eða athafnir voru honum ekki að skapi enda Hjálmar með skynsamari mönnum í sinni sýslu. Hann hafði sterka réttlætiskennd og fann ósjaldan til með lítilmagnanum þegar til átaka kom. Þægileg og hlýleg nærvera Hjálmars var vafalítið hans aðalsmerki og einfaldlega landsþekkt sunnan heiða enda gerði hann mönnum ávallt jafn hátt undir höfði, hvort sem lærðir menn eða vesalingar væru á hans fundi. Einnig var það almannarómur að Hjálmar hefði ótrúlega næmt tóneyra og hafði hann mikið dálæti á fallegum hljómum, hann kunni vel að meta vorsöng lóunar sem og tístið í snjótittlingum að vetri til. Þá var niðurinn í bæjarlæknum í sérstöku uppáhaldi hjá honum. Hann var lofaður Sigríði Hrútsdóttur frá Lambhaga í Dýrafirði og var hún talin hin föngulegasti kvenkostur. Voru þau hjón miklir dýravinir og höfðu mörg heimilisdýr í koti sínu.
