Stórtíðindi frá Gunnari bónda í Hvammi
Mér segir svo hugur að allt gangi upp og þetta sé dagurinn minn…
Ég hef verið að söngla með sjálfum mér þennan dægurlaga texta sem hljómar nú á öldum ljósvakans, í þeim tilgangi að hafa jákvætt hugarfar að leiðljósi. Mér er ákaflega mikið gleðiefni að tilkynna hér með að minni sleitulausu baráttu undanfarna daga er lokið. Þegar allt virtist vera að fara á versta veg og enginn von virtist vera í sjónmáli, eftir mikla þrautseigju, þolinmæði og þó nokkra eljusemi hefur mér loks tekist að selja bílinn minn. Fyrrverandi fákur minn var svartur sportbíll af gerðinni Mitsubishi 3000GT. Um er að ræða slétt skipti á BMW 750 árgerð 1991. Gengið var frá þessum bílaviðskiptum með virðulegri athöfn á skrifstofu skólastjóra í Kópavogsskóla. Mesti slúðurberi vorra tíma ( Halldór eða Valdís eins og hann kýs að kalla sig ) hafði komist á snoðir um fyrirhuguð bílaviðskipti en það skal tekið skýrt fram að ekki var það öldruð kona sem keypti bílinn heldur sonur skólastjórans. Í fréttatilkynningu sem Gunnar í Hvammi sendi frá sér nú eftir hádegið segist hann hæstánægður með þessi viðskipti. “Við erum að tala um forstjórabíl, hvorki meira né minna. Við erum að tala um leður, topplúgu, sjálfskiptingu og rafnmagn í öllu. Þetta er ekkert flóknara.”
