Strákarnir Okkar
Mér áskotnaðist upptaka af grínþáttum sem kumpánar mínir úr menntaskóla voru að leika sér að búa til. Strákarnir okkar kallast þessi grínþáttaröð og má segja að húmorinn og atriðin séu dáldið í anda fóstbræðra. Menn eru kýldir í magann, það er gert grín að blindum og fleiri minnihlutahópum. Mig langaði nú bara til að lýsa ánægju minni yfir þessu efni ykkar drengir, ótrúlega mörg fín atriði. Halldór fer á kostum sem kennari, Hjalli alveg frábær sem rauðhærði gaurinn sem fær ekki afgreiðslu og er að lokum drepinn. Kiddi magnaður sem eróbikk þjálfari og Bogi auðvitað traustur fyrir aftan myndavélina. Ekkert nema gott um þetta að segja. Fyrsta flokks skemmtun og vonandi á maður eftir að sjá meiri fíflagang síðar. Ég yfirgef landið með þessum orðum og hendi væntanlega inn ferðasögu og myndum frá London á mánudag. Góða helgi.
