Góðar fréttir fyrir blogg-menningu þessa lands
Það er mér óskaplega mikill heiður að kynna hér til hliðar á vinatenglalistann minn frænku mína, Ragnhildi Ágústsdóttur, nemanda í HR, fyrrverandi fótboltastjörnu og uppeldissystur til nokkra ára. Ég held það sé ótrúlegur fengur eða öllu heldur gríðarleg lyftistöng fyrir bloggið að Ragga eins og hún er oftast kölluð sé byrjuð að deila með okkur, sínu lífshlaupi og hennar skemmtilegu skoðunum. Þannig að ég hvet ykkur eindregið ef þið eruð orðin einhvað leið á síðunni minni, að kíkja í heimsókn til stelpunnar. Hún er líka miklu hressari og sætari en ég sjálfur. Þó ég sé nú ekki spámannlega vaxinn þá tel ég að bloggsíða Röggu verði mitt uppáhald í komandi framtíð. - Eftir frekar mikla lognmollu í janúar er allt útlit fyrir að byr komist í seglin í febrúar hjá Gunna Gunn. Fyrsti mánuður ársins er yfirleitt tíðindasnauður hjá mér, maður náði sér í smá vott af handboltaþunglyndi en þó það sé bráðsmitandi vírus þá læknast hann blessunarlega fljótt enda hefur Gunnar í Hvammi jákvætt hugarfar að leiðarljósi þessa dagana. Meira um það síðar.
