been fuelin' up on cocaine and whiskey

mánudagur, febrúar 23, 2004


Það er alltaf gaman að skreppa aðeins til útlanda

Smelltu ? myndina til ad st?kkaFöstudagur 20. febrúar
06:00 Mamma eldaði hafragraut áður en haldið var í ferðalagið til London.
06:30 Lagt var af stað árla morguns áleiðis á Keflavíkurflugvöll.
07:15 Ég og Valdi bróðir bókum okkur í flugið.
09:10 Flugvélin fer í loftið og áætlaður flugtími er um þrjár klukkustundir.
12:20 Mikil föstudagsumferð á Heathrow flugvellinum í London orsakaði örlitla seinkun.
14:30 Komnir á fjögra stjörnu hótelið Chelsea Village.
15:00 Skoðunarferð um Stamford Bridge í fylgd með enskum skemmtikröftum. Þeir spurðu hópinn með hvaða liði við héldum. Flestir héldu auðvitað með Chelsea en það voru þó nokkrir sem sögðust halda með öðrum liðum. Þegar einn í hópnum sagði: I’m a Fulham supporter. Var svarað um hæl. Does they still exist? Búningsaðstaða leikmanna og herbergið þar sem blaðamenn taka viðtöl við leikmenn og þjálfara fyrir og eftir leik var einnig skoðað.
17:00 Fórum í Chelsea Megastore þar sem keyptar voru Chelsea treyjur og treflar ásamt fleiri minjagripum.
18:30 Þriggja rétta kvöldmatur í boði Chelsea. Prýðilegur matur sem smakkaðist ljómandi vel.
21:30 Tókum léttan göngutúr um Chelsea hverfið.

Laugardagur 21. febrúar
09:00 Morgunmatur á hótelinu.
10:30 Mannlífið og stemmning fyrir utan leikvanginn könnuð.
11:45 Ég og Valdi bróðir ákváðum að mæta snemma til leiks og finna okkar sæti.
12:30 Kick off. Gríðarlega mikil stemmning á vellinum og allt trylltist þegar Eiður skoraði eftir aðeins 28 sekúndur, 1-0. Ólýsanleg upplifun. Gamanið kárnaði þó fljótt því fyrirliði Arsenal, Patrick Viera skoraði skömmu seinna eftir frábæra sendingu frá Dennis Bergkamp 1-1. Aftur sló þögn á heimamenn þegar Brasilíumaðurinn Edu skoraði svo annað mark Arsenal á tuttugustu mínútu 2-1. Snemma í seinni hálfleik fær Eiður sitt seinna gula spjald og er rekinn af velli. The Gunners höfðu öll völd eftir það og unnu sannfærandi sigur.
14:30 Flautað til leiksloka, fín skemmtun að baki þó svo að úrslitin hafi ekki alveg verið eins og best væri á kosið.
17:00 Ákváðum að fara í bæjarferð í neðarjarðarlestinni. Skoðuðum helstu ferðamannastaði í London. Stóri Ben, Buckingham höll og Trafalgartorg tæklað.
19:30 Skelltum okkur á Pizza Hut á Oxford Street og var það einstaklega góð máltíð, ekki var ísinn síðri sem ég fékk mér í eftirrétt. Nammi namm.
22:00 Haldið heim á hótel í Chelsea eftir smá búðarráp.

Sunnudagur 22. febrúar
10:00 Morgunmatur á hótelinu.
11:00 Fórum aftur í Chelsea Megastore og keyptum meira dót.
12:00 Bókuðum okkur út af hótelinu.
12:30 Ákváðum að skoða betur Oxford street, þar fórum við í 5 hæða leikfangaverlsun sem heitir Hamleys. Einnig lá leið okkar í Listasafn við Trafalgartorg þar sem málverk eftir Vincent Van Gogh og Rembrandt ásamt öðrum listamönnum bar við sjónir. Eiginlega alveg magnað því ég hélt að þetta yrði alveg drepleiðinlegt. Heitt kakó í kuldanum í London var alveg málið eftir að menningarþorstanum hafði verið svalað.
17:00 Lagt af stað í Heathrow Express lestinni áleiðis á flugvöllinn.
18:00 Bókun í flugið heim staðfest. Valdi bróðir reyndi af fremsta megni að klára allt klinkið sem hafði safnast saman í ferðinni. Ég held að honum hafi bara tekist vel upp.
20:50 Áætlaður flugtími seinkar um hálftíma.
21:35 Komnir í loftið og á leiðinni heim til Íslands.
00:42 Lentir eftir einstaklega þægilegt flug, ákaflega hlýlegur rigningarsuddi tók á móti okkar við heimkomuna. Afar velheppnaðri helgarferð til London var þar með lokið.

|
Ef þú vilt spjalla við mig
MSN: gunnigunn@hotmail.co.uk

Saumaklúbburinn

Netagerðarmenn:
Agnes
Ásta Rakel
Berglind
Bogi
Davíð
Dóra
Elísabet
Elsa
Freyja
Guðný Jóna
Ísak
Hermann
Helga Björk
Halldór
Hjálmar
Hjördís
Jón Örn
Ragga
Svanlaug
Sammi
Sigurður
Valdimar
Þórarinn
Myndasyrpa Gunna Gunn:
Gamalt&Gott
Á róló með Evu
Ísland-Ítalía
Djammið
Sálarböll
Daglegt Líf
Afmæli Ísaks
Chelsea-Arsenal
Framkvæmdir í Hvammi
Árshátíð Ímis 2001
Árshátíð Ímis 2003
Áramótagleði 2004
Afmæli Davíðs
Á landsliðsæfingu
Árshátíð Íslandspósts
Árshátíð Ísl.pósts (part 2)
Sálin á Nasa 7. maí 2005
Í svörtum fötum á Nasa 28. maí
Ferming Þórdísar 18. júní
Nokkrar myndir af Evu
Lanzarote í öllu sínu veldi
Lanzarote part II
Sálarball á Selfossi
Jólin 2005
Magni og Dilana á broadway
Árshátíð Íslandspósts 2006

Powered by Blogger